Fara á efnissvæði

Starfssemi

World Class

World Class

World Class í Egilshöll býður upp á þrjá hóptímasali auk stórs og glæsilegs tækjasals. Um er að ræða einn fjölnotasal, einn sal ætlaðan Hot Yoga og einn fyrir spinning.

Sambíóin

Sambíóin

Sambíóin Egilshöll er eitt fullkomnasta kvikmyndahús landsins. Öll aðstaða og tækni er eins og best verður á kosið. Fjórir sýningarsalir eru í húsinu með samtals 841 sæti.
Öll sæti eru sérlega þægileg  og rými milli sæta er meira en gengur og gerist.

Fjölnir

Fjölnir

Fjölnir er með fjölþætta starfsemi í Egilshöll. Skrifstofa félagsins er í anddyri Egilshallar á 1 hæð. 
Knattspyrnu-, frjálsíþrótta-, karate- og fimleikadeildirnar eru allar með reglulegar æfingar í húsinu. Flestar þessara deilda hafa séraðstöðu.

Keiluhöllin

Keiluhöllin

Keiluhöllin í Egilshöll er heill heimur af skemmtun fyrir alla aldurshópa. Þar er að finna fjölskylduvæna stemningu þar sem allir geta skemmt sér á jafnréttisgrundvelli. Þar eru 22 keilubrautir af fullkomnustu gerð, einn veglegasti Sportbar landsins, píla og kariókí ásamt veitingastaðnum Shake & Pizza.

Hæfi

Hæfi

Hjá Hæfi starfar reynslumikið fagfólk á sviði endurhæfingar og heilbrigðisþjónustu.

Skotfélag Reykjavíkur

Skotfélag Reykjavíkur

Skotfélag Reykjavíkur er elsta íþróttafélag Íslands, stofnað árið 1867.

Höllin frístundaheimili

Höllin frístundaheimili

Höllin er sértæk félagsmiðstöð sem þjónustar fötluð börn og unglinga sem eru í almennum grunnskólum í Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal, Árbæ, Norðlingaholti, Kjalarnesi og Brúarskóla.

Manhattan hárgreiðslustofa

Manhattan hárgreiðslustofa

Manhattan er hárgreiðslustofa sem veita faglega og persónulega þjónustu.

Next Level Gaming

Next Level Gaming

Next Level Gaming rafíþróttamiðstöð er í stærstu afþreyingarhöll landsins og býður upp á 50 PC tölvur, bása með sýndarveru-leikagleraugum, Playstation/Nintendo aðstöðu, tvö einkaherbergi með PC tölvum sem hægt er að leigja, eitt VIP herbergi með Playstation/Nintendo, kareoki, tvo racing sims og bar þar sem viðskiptavinir geta sest niður og spjallað eftir góðan leik.

Golfsvítan

Golfsvítan

Í Golfsvítunni geta einstaklingar og hópar komið og spilað golf saman eða stundað golfæfingar í ró og næði við frábærar aðstæður allt árið. Um er að ræða búnað frá Trackman sem er besta tæknin sem fæst í dag í golfhermaheiminum.

Shake & Pizza

Shake & Pizza

Shake&Pizza er eins og nafnið gefur til kynna pizza-staður sem sérhæfir sig í pizzum og mjólkurhristingum. Einstakt úrval mjólkurhristinga sem ögra öllum viðmiðum og vandaðar pizzur úr hágæðahráefni. Fjórða besta pizza í heimi sem heitir "Beikonsultupizzan", eitthvað sem þú verður að smakka.